Sunday, July 6, 2008

TIL LEIGU

Einbýlishús á einni hæð. húsið er 190fm og skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús ásamt góðum bílskúr. Háraða þráðlaus internettenging er einnig til staðar.

Aðal svefnherbergið er með stóru fataherbergi og mjög góðu baðherbergi. Þar er tvöfaldur vaskur, salerni, stórt baðker og tvöfaldur sturtuklefi. Eldhúsið er vel búið tækjum á bandaríska vísu. þar eru stólar og borð fyrir 8 manns. Þvottahús er innan af eldhúsi með þvottavél og þurrkara. Stór verönd og sundlaug yfirbyggð með flugnaneti, gengið er útá verönd frá eldhúsi og svefnherbergi, góð útihúsgögn, gasgrill, vindsængur, sólstólar og einnig blaknet fyrir sundlaug.

Í hverfinu er glæsilegt klúbbhús, þar er líkamsræktaraðstaða, borðtennisborð, billiardborð og aðgangur að fjórum internettengdum tölvum. Einnig er þar gott bókasafn og aðstaða fyrir samkomur. við klúbbhúsið er tennisvöllur. þar er frábær sundlaug með sólbekkjum, stólum og borðum. Salernis- og sturtuaðstaða fyrir sundlaugargesti er inni í klúbbhúsinu. Þetta er mjög fallegt og rólegt hverfi og öll sú aðstaða sem áður er upptalin, er eingöngu fyrir íbúa hverfisins og gesti þeirra.

Húsið er staðsett í Kissimmee, sem er suðvestur af Sanford International Airport.

Vegalengdin frá Sanford og til Stonehurst er 46 mílur eða 74km miðað við að farin er hraðbraut nr 417. stutt er í alla þjónustu og einungis 8 mílur í Disney World. Í næsta nágrenni eru góðir golfvellir (t.d. "Falcon Fire" og í "Hunters Creek")

Heimilisfangið er 3135 Stonehurst Circle, Kissimmee, 34741 Florida. Hverfið heitir "STONEFIELD" sem er afgirt með öryggishliði.

Lágmark vikuleiga
Til að fá frekari upplýsingar sendið okkur email á svanar@mi.is

Friday, February 9, 2007